Ávallt í eigin heimi
31.08.2007 14:22:04 / johannasveins

Minna hömp - meiri bjór


Ég komst að því í gærkvöldi eftir að hafa starað íbyggin ofan í bjórglösin mín (alls átta bjórglös), að það er miklu betra að detta í það á fimmtudögum en á föstudögum og laugardögum. Bæði er fólk mun afslappaðra, bæði í fasi og klæðnaði og það eru ekki allir að reyna að hömpa mann við barinn. Ég held að fólk stundi sjaldnar skyndikynni á fimmtudögum út af einhverjum ástæðum og sé því aðeins rórra í the hömp department.

Auk þess, þá fær maður sæti á skemmtistöðunum, það er ekki eins troðið, maður kemst á klósettið á innan við hálftíma, það er enginn að berja mann eða kalla mann lufsu eða drullupésa. Og umfram allt; það er svo gaman að detta í það þegar þú veist að þú átt eiginlega ekki að vera að gera það. Til hvers að standast freistingarnar þegar maður getur látið undan þeim??

Þannig ég vaknaði hræðilega krumpuð í morgun eftir íbyggni mína á Ölstofunni. Mætti of seint og missti af starfsmannafundinum og var sagt að í fjarveru minni hefði ég verið kosin formaður árshátíðarnefndar!!!! Kom þó síðar í ljós að um grimman djók var að ræða sem mér þótti alls ekki fyndinn. Ég er þó ekki eins krumpuð og ein önnur hérna sem getur varla fókusað fyrir þynnku. Ég var að spá í að stela gleraugunum hennar og sjá hvort hún gangi nokkuð á vegg.

Hey! Ég átti alltaf eftir að sýna ykkur myndbandið frá því þegar við stelpurnar í saumklúbbnum fórum í eróbikk um daginn. Njótið vídjósins og eigið unaðslega helgi.

http://www.youtube.com/watch?v=dUsJYKdYGmw


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 16:56:47 / johannasveins

Stokkhólmsferðasagan

 

æ hvað er gott þegar einhver annar skrifar ferðasöguna fyrir mann :haha:

 http://dagnyben.blogspot.com/


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 14:16:25 / johannasveins

Speki dagsins

 

Aldrei kalla mann heimskan ... láttu hann frekar lána þér pening.


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 16:31:11 / johannasveins

Jæja !!!!!!!!!!!!!!!! Komið að skuldadögum

 



Sögur herma að bón þessi komi frá hreinum og sönnum stað í hjarta konunnar.
Þetta kennir manni að nota smokkinn og styðja ekki R-listann í neinni mynd!

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 13:30:08 / johannasveins

ööööömmmmm


smá dægrastytting...

http://www.maniacworld.com/what-is-she-talking-about.html

magnað hvernig henni tekst næstum því að koma inn á "... and world peace" í endann.


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 15:26:19 / johannasveins

Digital disabled

 

Ég held ég sé of stafrænt seinþroska og tölvufötluð til að halda úti svona síðu. Ég týni alltaf öllu sem ég geri og það gerist aldrei neitt sem ég vil að gerist en allt það sem ég vil að gerist gerist ekki ... svolítið eins og að standa á haus, fullur.

 p.s það er önnur ný færsla hér fyrir neðan. Þetta kemur allt skrítið í dag 8|


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 13:42:01 / johannasveins

Kaffi í 30 þúsund fetum


Mér hefur alltaf þótt mjög óþægilegt að fljúga en taldi mig aldrei beint flughrædda. Fyrir nokkrum árum var ég svo stödd á flugvellinum í Brussel á leið heim til Íslands og ræddi óróleika minn við einn ferðafélagann. Sagði hann mér að vera alveg óhrædd þar sem Icelandair væri öruggt flugfélag, eitt af þeim bestu, og það hefði aldrei neitt verulegt komið upp á hjá þeim.
Benti þá annar ferðafélagi á þá staðreynd að því lengri tími sem liði áfallalaust hjá Icelandair því meiri líkur væru að eitthvað myndi koma upp. Rökin voru: Á endanum mun eitthvað gerast.
Síðan þá hef ég verið sannfærð um að ég verði þess vafasama heiðurs aðnjótandi að “taka þátt” í fyrsta alvarlega flugslysi Icelandair þegar vélin hrapar í sjóinn með Saga Bútík og öllu klabbinu. 

Ég komst þó lifandi til Stokkhólms og ég komst lifandi til baka. Ferðalagið gekk bara furðuvel (annað en síðast þegar ég fór að gráta í flugtaki). Ég meira að segja gat borðað matinn minn á heimleiðinni OG fékk mér kaffi á eftir sem ég hef aldrei gert áður. Kaffið var mjög gott. 

Þannig ég er alveg sprelllifandi þessa dagana sem kemur mér á óvart þar sem ég fór tvisvar sinnum í flugvél í síðustu viku. En eins og Dagný vinkona sagði þegar ég tilkynnti henni að ég væri komin á klakann, lifandi, sagði hún "Gott. Þú ert miklu skemmtilegri lifandi." Ég þakka hrósið. 

Læt svo fylgja með tvo skemmtilega Monty Python sketsa sem einmitt gerast í flugvél.

http://www.youtube.com/watch?v=xJSey8HRUhU

http://www.youtube.com/watch?v=KkVEif0WKoQ


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 14:11:42 / johannasveins

Bara ógeð


Hver kannast ekki við það að vera einhversstaðar í heimahúsi og geta bara ekki pissað í klósettið því hönnunin er bara viðbjóður?

And I qoute .... Piparsveinaíbúð dauðans! Ásgeir Kolbeins og naggurinn úr Innlit Útlit fara á kostum. Note to self, aldrei selja Ásgeiri Kolbeins íbúðina ykkar.

http://www.youtube.com/watch?v=uU5kC2Ldmzc


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 16:56:46 / johannasveins

Smá klúður


Það er nú sagt að þegar maður fer í sumarfrí þá eigi maður að kúpla sig algjörlega frá vinnunni og leiða hugann eitthvert annað, ofan í bjórglas eða á sólbekk eða e-ð slíkt.
Því ákvað ég í upphafi míns sumarfrís að taka mér algert frí frá fjölmiðlum.

Í staðinn fyrir að horfa á fréttir þá horfði ég á Dr. Phil og Everybody Loves Raymond. Um leið og blöðin komu inn um lúguna þá henti ég þeim í ruslið. Á Ölstofunni hef ég ekki rætt um heimsmálin heldur kjúklingarétti og útfærlsur á A-molli með G í bassa.
Einu fréttirnar sem ég er búin að hlusta á eru veðurfréttirnar á Rás 1 en bara af því mér finnst svo gaman að heyra þýsku veðurkonuna segja Gaaargsgargatrhand (Í. Garðskagaströnd) 

Því er ég búin að svífa um á bleiku skýi fáfræðinnar og get fullyrt um það... að ég veit ekki neitt... allavega ekki neitt um það sem gerst hefur síðustu þrjár vikurnar. Smá klúður. Ég fór í sumarfrí og tókst á meðan að verða heimsk og óviðræðuhæf. Og nú er ég að farast úr forvitni yfir því what is öpp in áur samfélagi. 

Ég til dæmis veit ekki alveg hvað er málið með Grímseyjarferjuna, hver Dean er eða hvert hann er að fara, hvort vextirnir á íbúðaláninu mínu hafi hækkað, hvort menn séu í alvöru að hugsa um að fleygja upp olíuhreinsistöð fyrir Vestan eða þá hvort enginn ætli að hafa fyrir því að reikna út losunarheimildirnar á móti útreikningum Íslensk hátækniiðnaðar og síðast en ekki síst... yfir hverju voru allir að tuða varðandi þessa Kaupthings tónleika?

Hinsvegar veit ég eitt... ég las eitt stykki Cosmopolitan og get því frætt ykkur um 50 nýjar leiðir til að búa til meiri nánd við makann ykkar. Og ég sem á ekki einu sinni kærasta! Haha.

Og jú... ég veit hvernig veðrið er búið að vera á Gaaargsgarsatrhand.

Bjútí and brains titillinn minn er soldið að fjúka útí veður og vind.

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 13:16:48 / johannasveins

Ég vil bera menn

 

Ég er svo þunn að ég er að horfa á verðlaunaafhendingu Motor GP eða hvað þetta heitir. Jafn leiðinlegt og það sport er þá hef ég bara ekki orku í að skipta um stöð eða hreyfa mig úr sófanum.

Maður í rauðum galla vann semsagt keppnina. Eru það falleg fljóð í pínulitlum kjólum sem sjá um að afhenda verðlaunin og kampavínsflöskur og ég velti fyrir mér af hverju? Ljóshærða konan í ogguponsu rauða kjólnum er alveg örugglega ekki framkvæmdastjóri alþjóðasambands mótórhjólakappa og brúnettan í hjúkkubúningnum er örugglega ekki framkvæmdastjóri Goodyear aðal styrtktaraðila keppninnar. Ég held þær séu þarna til að fegra verðlaunapallinn. Sem er alveg hið besta mál og ég er ekki að setja mig upp á móti því, sjálfri finnst mér skemmtilegra að spá í stelpunum, hárinu og kjólunum, heldur en að sjá elliæra framkvæmdastjóra í gráum jakkafötum. Þetta er bara svo hallærislegt!

Af hverju er ekki svona fyrirkomulag í "kvennaíþróttum" líka. Listrænu skautadansaranir standa þá glitrandi og brosandi á verðlaunapallinum og hálfberir velbyggðir hölkar sjá um að rétta þeim verðlaunapening og blóm. Það væri mjög hallærislegt... en samt svo gaman.

Annars skemmti ég mér konunglega í gær og sendi kveðju til allra sem lögðu sitt af mörkum við að skemmta mér. Ávallt gaman að sjá ykkur.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 15:06:03 / johannasveins

"Downtown, everything is waiting for you"

 Jæja þá er Menningarnótt að renna í garðinn. Útihátíð Reykvíkinga þar sem landsbyggðarfólk fær tækifæri að pissa, skíta og æla út um alla borg eins og malarbörnin gera um verslunarmannahelgar úti á landi.
Hinsvegar er spurning hvort einhver eigi eftir að þora niður í miðbæ á morgun. Síðustu viku hefur sodómóskum/gómorrómskum dauðadómspám verið haldið uppi í fjölmiðlum og heldur örugglega margur úthverfalingurinn að ferð í miðbæinn jafngildi limlestingum, herpes og dauða.
Og ég verð að viðurkenna að þessi umfjöllun stingur svolítið í hjartað. Þetta er nú einu sinni hverfið mitt og ég kann ekki við það að allir séu að tala um hvað hér sé ógeðslegt. Mér finnst yndislegt að vera hér.

Um daginn rölti ég til dæmis heim í yndislegu veðri á miðri Njálsgötunni. Gekk svo fram á partý þar sem fimm stæltir menn voru út á svölum, berir að ofan í dillandi stuði. Við skiptum á nokkrum hamingjuríkum orðum og svo hélt ég mína leið.
Ég rölti niður í miðbæ í gærdag í blíðu veðrið brosti til túrista, verslaði geisladiska og heilsaði upp á samborgara mína. Kíkti til Braga bóksala á Klapparstígnum sem hjálpaði mér að leysa fjölskyldudeilurnar með því að selja mér orðabók fyrir Scrabbleleikina. Svo mætti ég hinum frægu Kompáshjónum Jóa og Guggu. Þau voru hress og Jói með þennan frábæra veiðihatt á kollinum sem fór honum einstaklega vel. Ég er reyndar alltaf smá sár út í Guggu að hún skuli ekki muna eftir mér síðan hún lamdi mig með plastblómi forðum daga þegar ég var að vinna á Galileó. En maður getur víst ekki munað eftir öllum sem verða á vegi manns.
Hreint yndislegur dagur í miðbænum... enda yndislegur staður. 

Því finnst mér leiðinlegt að umræðan um miðbæjar"ástandið" þurfi að vera svona dramatísk. Fréttamenn þefa uppi barþjóna sem væla yfir því að vera haldið í gíslingu á barnum því allir eru að slást fyrir utan og tekst einhvern vegin að mála myndina þannig að á sunnudagsmorgnum sé ekki þverfótað fyrir rusli, áfengisdauðu fólki, notuðum smokkum, fíkniefnasprautum og afbitnum eyrum á götum bæjarins.
Vissulega má margt laga og taka á mörgu og því er skýrsla lögreglustjóra af hinu góða. En það þarf heldur ekki að gera of mikið úr ástandinu af því ekkert annað er í fréttum. Vona bara að borgaryfirvöld fari ekki þá leið að leysa upp partýið með of miklum reglugerðum, boðum og bönnum.

Hinsvegar var skemmtileg frétt á Rúv núna í vikunni sem fjallaði um nýja tegund af skólafatnaði, sem var bæði skotheldur og veitti vörn fyrir hnífstungum. Greinilega vandamál í Bretlandi hversu margir eru stungnir á hol í skólum þar í landi og því er farið að framleiða skólabúninga með þessu móti. Og er þetta ekki bara lausnin fyrir miðbæjarvandamálið... allir klæða sig í skot- og “hnífheldan” fatnað, setja á sig öryggishjálm, sótthreinsaða gúmmíhanska og gasgrímu. Þá eru allir öruggir. Þá fær líka setningin... “skelltu þér í djammgallann og kíktu með í bæinn”... alveg splunkunýja merkingu.

Að lokum læt ég fylgja hér með skemmtilegan söng um miðbæjarlíf sem er eins og sunginn út úr mínu hjarta.
Eigið góða menningarnótt og njótið miðbæjarins. 

http://youtube.com/watch?v=8GVE7lRZuFM


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 13:14:42 / johannasveins

The crazy canlady


Jæja ég fór í endurvinnsluna í gær og nú er drykkjutölfræðin komin í hús.

Nú er liðið ár frá því ég flutti í íbúðina og þar sem ég er svo samviskusöm og vistvæn (eins og sést á bílnum sem ég keyri) þá hef haldið utan um hverja einustu dós og hverja einustu flösku sem drukkin hefur verið hér á Mánanum. Hinsvegar hefur skort á nennu minni til að fara með helvítis dósirnar í endurvinnsluna.

En í gær lagðist ég í verkefnið. Hreinsaði ársbirgðir af gömlum dósum úr geymslunni og bar út í bíl. Alls sjö svarta ruslapoka!
Húrraði svo heim til mömmu og pabba og sat þar í sólinni og flokkaði og taldi. Mér leið eins og the crazy canlady með my precious. Svo rifjuðust upp minningarnar meðan draslið var talið. Hugsaði til Heiðu þegar breezzeerarnir dúkkuðu upp, til jólaspilasklúbbsins þegar búlgörsku X-Mas bjórdósirnar sýndu sig og til viðskiptablaðspartýsins þegar ég sá nokkrar tveggja lítra rauðvínsflöskur sem hurfu á undarlegan máta úr kokteilboði í slippnum og enduðu heima hjá mér.

Svo fór ég Sorpu og fékk undarlegt augnaráð frá manninum sem var á eftir mér. "Bara stórsöfnun í dag ha?" sagði hann og horfði á pokana mína sjö. "Nei nei," sagði ég stolt af my precious "svona er þetta að búa í miðbænum." Hann varð smá undarlegur í framan og ég fattaði eftir á að ég hefði kannski átt að bæta við að "... þess vegna held ég öll partýin skiluru?". Maðurinn heldur örugglega að ég sé ein af þeim sem arka um bæinn um helgar með klút fyrir andlitinu og safna dósum meðan aðrir tjútta.

Allavega. Niðurstaðan er...
Á 12 mánuðum höfum við drukkið alls úr 375 dósum, 150 plastflöskum og 98 glerjum. Það gera alls 623 einingar.
Hér verður þó að taka fram að afföllinn eru þær flöskur og dósir sem fólk ákvað að rölta með í bæinn auk þess sem neysla á sterkum vínum kemur ekki fram í þessum tölum um heildaráfengisneyslu á Mánanum árið 2006 til 2007. Einnig er vert að hafa í huga að ein glerflaska getur verið bæði tveggja lítra rauðvínsflaska eða lítil bjórflaska. Dósirnar voru bæði stórar og litlar.
Að meðaltali hefur hér því verið drukkin 1,7 eining af áfengi á dag eða tæpar 12 einingar á viku. Sé miðað við að hér hafi verið haldið partý aðra hverja helgi allt árið gera það 26 partý og neyttar einingar hafa þá verið 23,9 í hverju teiti.
Alls skiluðu einingarnar 6230 krónum í vasa húsráðenda en fyrir þann pening má kaupa 10, 3 stóra bjóra á ölstofunni eða 519 fílakaramellur nú eða bara bland í poka ef maður vill vera verulega nastí við sjoppuafgreiðslufólk.

Hinsvegar vitum við öll að gleði er ekki mæld í Sorpu og við eigum örugglega öll ljúfar og móðurkenndar minningar héðan af Mánanum síðasta árið.

Ég þakka þeim er drukku.


» 14 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 15:06:45 / johannasveins

Meðvitundarlaus geitungur

Ég átti ákaflega venjulega sumarbústaðarhelgi hjá fjölskyldunni í upphafi sumarfrís. Ég og mamma hófum blóðugt Scrabble stríð um leið og við vorum komnar inn í bústað. Ég náði fljótt yfirhöndinni í leiknum, hafði þrjá sigra á mömmu, hún gaf mér illt auga og ég sá að hún myndi fljótlega snúa vörn í sókn. 

Sunnudagurinn rann svo upp í öllu sínu veldi, sólríkur og fagur. Skarðsheiðin skartaði sínu fegursta, flugur sungu og refir vöppuðu um í blíðunni. Í faðmi birkitrjáa hvíldi ég lúin sumarbústaðarbein á sólbekk, Rás 2 ómaði úr tækinu, pabbi dreypti á bjór og mamma andvarpaði af unun. Ég var á góðri leið með að sofna í öllum hitanum, lét hugann reika og komst í mjög tantríkst ástand þarna á sólpallinum. Namistei maður, algjört namistei.
Í því heyrist í móður minni segja “noj noj noj”, ég opnaði letilega annað augað til að sjá hvað væri um að vera og sá að geitungur flaug mjög ákveðið í beinni línu í átt að mömmu. En móðir mín ætlaði nú ekki á láta bjóða sér svona vitleysu, setti hún aðra hendina á loft og frá henni heyrðist mjög asískt “HHHÆÆÆÆJJJAH!” og hún sló í kvikindið. Við áreitið stakk geitungurinn út broddinum, við höggið rotaðist hann, af höggkraftinum hentist svo geitungurinn í frjálsu falli í átt að sólbekknum mínum þar sem hann svo endaði... SPLATS... á hökunni á mér. 

Það er sagt að þegar manneskjan lendir í hættulegum aðstæðum þá fari varnarkerfi líkamans í gang, pumpar út adrenalíni og rökhugsun til að auðvelda manneskjunni að komast af.
Sú líffræði átti ekki við hér. Tantríska ástandið mitt fauk út í rassgat og um leið og sársaukinn gerði vart við sig og ég fann litlu lappirnar á geitungnum límast við hökuna á mér hoppaði ég upp, byrjaði að baða út höndunum og væla. Nema geitungurinn haggaðist ekki, hann hékk bara meðvitundarlaus á hökunni á mér og danglaði þar fram og til baka á broddinum. Ég sá enga aðra leið út úr aðstæðunum en að öskra all svakalega. Geitungurinn vaknaði við öskrið og hélt sína leið.   

Mamma hélt því fram að þetta hefði allt saman verið algjört slys. Ekki skal ég um það dæma, en ég veit að þetta hafði engin áhrif á frammistöðu mína í Scrabble... þrátt fyrir að mamma hafi kannski vonast eftir því.Ég vann tólf umferða mót með 109 stigum, þar af fimm leiki með geitungabrodd í hökunni.


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 02:55:55 / johannasveins

tvær kók og prins... strax

 

 http://youtube.com/watch?v=SsFsVrQeOI4

Ef æfing stuðlar að fullkomnun... og enginn er fullkominn .. af hverju þá að æfa??


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 00:09:04 / johannasveins

Undarleg vatnssöfnun

http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1284228

 hvet ykkur til að skoða þessa frétt sem er að finna á mbl.is. Fréttinn fjallar um að skipulögð glæpastarfsemi sé að baki skógareldum á Ítalíu. Meðfylgjandi er mynd af björgunarþyrlu að ná í vatn í sjóinn á baðströnd þar sem næpuhvítir vesturlandabúar eru að baða sig í sjónum.
Og þá er spurt... hverjar eru líkurnar á að þyrlan hafi pikkað upp einn til tvo kafara í leiðinni og dömpað þeim svo yfir brennandi skóg? Ætli kafararnir fái skúbbadæving námskeiðið endurgreitt fyrir vikið?
Við getum þó allavega huggað okkur við að þeir eru væntanlega með einhverskonar súrefniskút sem hjálpar þeim að anda í reykjarkófinu.

Svona getur lífið verið fullt af skemmtilega óvæntum uppákomum sem leiða mann á staði sem maður bjóst aldrei við að fara á.

Vona að linkurinn virki


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill